Um HentarRafbílar í rekstrarleiguFólksbílarSendibílarÞjónustaGjaldskráSpurningar og svörHafa samband
Póstlisti

Hentar
Krókhálsi 11, 110 Reykjavík
Kt. 450704-2290
Sími: 590 2111


hentar(hja)hentar.is

Um Hentar
Fólksbílar
Sendibílar
Spurningar og svör
Skilmálar
Persónuverndarstefna Hentar
Vafrakökur

Starfsmannaleiga

Hentar býður starfsmönnum Bílaumboðsins Öskju og tengdra félaga upp á langtímaleigu á ökutækjum á hagstæðum kjörum.

Um er að ræða einfalt fyrirkomulag þar sem greitt er fast mánaðarlegt gjald fyrir afnot ökutækis ásamt tiltekinni þjónustu.

🔑 Fyrirkomulag leigu

Leigan er sett upp í samræmi við rekstrarleigu Hentar:

  • Lykill fjármögnun er leigusali og eigandi ökutækis
  • Leigutaki (starfsmaður) er skráður umráðamaður ökutækis
  • Bílaumboðið Askja er skráð sem umráðamaður nr. 2 og þjónustuaðili samningsins

Af þessu leiðir að:

  • Leigutaki ber ábyrgð á greiðslu opinberra gjalda, þ.m.t. bifreiðagjalda og kílómetragjalds, samkvæmt ákvörðunum og innheimtu Skattsins.
  • Leigutaki annast skráningu akstursupplýsinga eftir því sem við á, m.a. í gegnum island.is

📅 Leigutími og framboð

  • Leigutími: 12 mánuðir
  • Innifaldir km á ári: 18.000 km
  • Framboð er takmarkað og ræðst af því hvað er tiltækt hverju sinni
  • Nýjum ökutækjum er bætt við eftir því sem þau berast
  • ATH: takmarkað framboð er af bílum


📝 Umsóknarferli

  • Umsækjendur sækja um í gegnum umsóknarform hér að neðan
  • Allar umsóknir eru háðar samþykki Lykill fjármögnun samkvæmt þeirra lánshæfismati og skilmálum


✅ Innifalið í leigu

Í mánaðarlegu leigugjaldi er almennt innifalið:

  • Reglubundin þjónusta og viðhald samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda
  • Viðgerðir vegna eðlilegs slits
  • Heilsársdekk, en einnig val um nagladekk gegn 5.000 kr aukagjaldi per mánuð á leigutímabili
  • Tryggingar og kaskó trygging
  • Afnot af lánsbifreið eftir því sem við á þegar ökutæki er í þjónustu eða viðgerð
  • Þjónusta hjá Bílaumboðinu Öskju

Nánari skilgreining á umfangi þjónustu er í leigusamningi.

❗ Ekki innifalið í leigu

Eftirfarandi kostnaðarliðir eru almennt ekki innifaldir í leigugjaldi:

  • Opinber gjöld, þ.m.t. bifreiðagjöld og kílómetragjald
  • Eldsneyti eða rafmagn
  • Sektir og önnur álögð gjöld vegna notkunar ökutækis
  • Sjálfsábyrgð vegna tjóna samkvæmt tryggingaskilmálum, sjálfsábyrgð 165.000
  • Kostnaður vegna umfram slits eða aksturs umfram samningsbundin mörk

Kia EV2 Light

78.900 á mánuði

Boðið er upp á 12 mánaða leigu

Allir bílar eru afhentir á Yokohama ónegldum heilsársdekkjum
Innifalinn akstur í starfsmannaleigu er 18.000 km á ári.

ATH: takmarkað framboð er af bílum en fyrstu bílar koma í maí 2026

smart #5 Pulse

114.900 á mánuði

Boðið er upp á 12 mánaða leigu

Allir bílar eru afhentir á Yokohama ónegldum heilsársdekkjum
Innifalinn akstur í starfsmannaleigu er 18.000 km á ári.

Aukagjald fyrir dráttarbeisli er 5.000 kr á mánuði

ATH: takmarkað framboð er af bílum

Smelltu hér til að skoða bíl

XPENG G6 Performance

129.900 á mánuði

Boðið er upp á 12 mánaða leigu

Allir bílar eru afhentir á Yokohama ónegldum heilsársdekkjum

Innifalinn akstur á ári 18.000 km

ATH: takmarkað framboð er af bílum

Smelltu hér til að skoða bíl

Kia-Picanto-Hentar-langtímaleiga

Kia Picanto - notaður

70.000 - 79.000 á mánuði

Boðið er upp á 12 mánaða leigu

Innifalinn akstur á ári 18.000 km

Verð er breytilegt eftir árgerð og akstri bílsins - allir bílar eru beinskiptir
ATH: takmarkað framboð er af bílum

Kia-stonic-langtímaleiga-Hentar-notaður

Kia Stonic - notaður

85.000 - 95.000 á mánuði

Boðið er upp á 12 mánaða leigu
Innifalinn akstur á ári 18.000 km
Verð er breytilegt eftir árgerð og akstri bílsins - allir bílar eru beinskiptir.
ATH: takmarkað framboð er af bílum

Kia-Ceed SW-phev-Hentar-langtímaleiga

Kia ceed SW PHEV - notaður

90.000 - 99.000 á mánuði

Boðið er upp á 12 mánaða leigu
Innifalinn akstur á ári 18.000 km

Verð er breytilegt eftir árgerð og akstri bílsins eins hvort að hann sé sjálfskiptur eða beinskiptur.
ATH: takmarkað framboð er af bílum

Umsóknarform

ATH að Lykill Fjármögnun þarf að samþykkja viðkomandi í starfsmannleigu

ℹ️ Mikilvægar upplýsingar

Leigutaki er ábyrgur fyrir notkun ökutækis samkvæmt skilmálum samnings

Allar upplýsingar á þessari síðu eru almennar og ekki bindandi tilboð

Endanleg kjör og réttindi eru skilgreind í leigusamningi

Leigukjör þessi eru eingöngu fyrir starfsfólk Öskju og tengdra félaga. Óski viðskiptavinur eftir leigu sem er ekki starfsmaður verður leigunni hafnað sjálfkrafa

Ökumaður í smart #1

Spurt og svarað

Ef keyrt er meira en 15.000 km er greitt 20 kr.- per km umfram það þegar bíl er skilað

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur og getur klárað þinn samning

Já, það er möguleiki að kaupa bílinn eftir 12 mánuði, verð ákvarðast við lok leigutíma

Því miður er ekki hægt að skipta um bíl á tímabilinu nema í undantekningar tilfellum. Sé þess óskað skal senda fyrirspurn um það á hentar@hentar.is

Skil fara fram á Krókhálsi 13 hjá sölusviði fyrirtækjasölu. Gott er að hafa í huga að taka alla aukahluti með svo sem skotthlífar, aukalykla, þjónustubækur o.s.frv.
Ökutækið fer svo í söluskoðun hjá Öskju við skil. Ef upp koma atriði sem eru ekki í samræmi við slit og not kafla samningsins skal starfsmaður greiða fyrir það.
Skila þarf bílnum hreinum og tilbúnum til sölu.